Birna Picciridda
miðvikudagur, janúar 24, 2007
mánudagur, janúar 22, 2007
Þetta kætti mig mikið
Já ég verð að segja það að þetta gladdi mig mikið í morgun þegar ég las ítölsku blöðin en hollendingar eru búnir að setja splunkunýjan bjór á markað, ætlaður hundum. Þetta er náttúrlega alveg hrein snilld þar sem að núna þarf maður ekki lengur á vinum sínum að halda ef mann vantar drykkjufélaga heldur opnar bara einn kaldan handa hundinum og voilá drykkjufélaginn mættur. Ég sé mig fyrir mér í ellinni heima í stofu, ég og voffi með tvo kalda okkur við hlið, bæði jafn fluffy og sæt. Já það er ekki amalegt!
Fyrir utan þessa snilld þá er verið að pakka niður. Ég ætlaði að reyna að senda eitthvað af dóti heim með Samskipum en það hefur greinilega verið svo mikið fjör með Eltoni John í afmælispartýinu um helgina að starfsmenn Ólafs á Íslandi voru ekki mættir í vinnuna í morgun. Ég er því að bíða og vonast til þess að liðinu í danska útibúinu hafi ekki verið boðið í veisluna og sé því ef til vill í vinnunni í dag. Sjáum til. Það er nú ekki hægt að búast við að fólk nái sér alveg strax eftir veislu sem kostaði hátt í milljarð ( tók ekki Elton litlar 300 millur fyrir afmælissönginn? ). Ég er allavega hrædd um að ég lægi enn í rúminu eftir svoleiðis djamm og þess vegna eins gott bara að mér var ekki boðið.
föstudagur, janúar 19, 2007
Nemendaskrifstofan
Ég fékk snilldar email frá nemendaskrifstofunni í dag. Ég hafði semsagt skrifað þeim til að tékka á stærðfræðinni sem enn er ekkert komið út úr. Svarið sem ég fékk var svo hljóðandi: Kæra Aðalbjörg. Allar einkunnir eru birtar á campusnetinu. Ef þú kannt ekki að athuga einkunnirnar þar þá ertu velkomin hingað á skrifstofuna og við kennum þér það.
Þetta fannst mér hrein snilld þar sem að stúdentanumerið mitt byrjar á 05 sem þýðir að ég var innskrifuð 2005. Hvurzlags sauður væri ekki búinn að læra að tjékka á einkunnunum sínum á öllum þeim tíma. Þetta bjargaði deginum alveg gjörsamlega. Annars ligg ég bara heima og drekk rauðvín allan daginn enda kláraðist allur skóli í bili í gær eftir að seinustu ritgerð B.Sc námsins var skilað inn. Nú er það bara vörn eftir viku.
Heilsist ykkur.
sunnudagur, janúar 14, 2007
Jæja
gleðifréttir! Ritgerðin er búin, það vantar bara efnisyfirlit ( sem by the way er eitthvað óþægt ehemm Ragnhildur, hjálp ) og forsíðu. Time of death var klukkan 04.30 í nótt þegar punkturinn var settur eftir margra tíma yfirlesningu. Þá er það bara skil á vetnisskýrslunni og svo vörn föstudaginn 26 jan. Svo frelsiiiiiiiiiii .... allavega í bili!Svo annað hvort á föstudeginum eða laugardeginum eftir vörn þá ætla ég að elda fyrir gesti og gangandi og gefa þeim rauðvín og bjór eftir smekk,því svo er ég farin heim!!Nú skulu nágrannadruslurnar fá að kenna á því eftir martröðina sem er búin að vera hérna seinasta árið í partýlátum og eltingarleikjum á ganginum um miðjar nætur! Það eru allir boðnir sem þekkja mig og komast en það er ágætt að þið látið vita af ykkur svo ég viti hvað þið eruð mörg svona ca. Það minnir mig á það að það er best að drífa sig út í hraðbanka og taka út 4864 krónurnar sem ég á eftir á reikningum mínum áður en yfirdráttarheimildin fellur!!!
En já tilmeldið ykkur eins og maður segir á góðri íslensku ( ohh ég er svo kúl, farin að sletta á dönsku ) svo ég búi ekki til of lítið af mat!!
p.s hvað er það annars með pasta verðlag í Skandinavíu? Dísus kræst sko bara ... mér er skapi næst að flytja til Afríku aftur!!
þriðjudagur, janúar 09, 2007
Hvað er verra en dani að tala dönsku?......
.....Svíi með yfirvaraskegg að reyna að tala dönsku.Er nýkomin heim frá vísindaferð í kjarnorkuverið í Barsebak ( skrifist með allavega bollu og punkta a-um ). Er held ég geislavirk eftir ferðina enda pípaði geislavirknileitartækið á mig þegar ég var sett undir það, við mikla kátínu viðstaddra. Mér fannst það ekki fyndið og var fegin að sleppa út úr þessari úranklofningsverksmiðju sem framleiðir sænskt rafmagn og plútonium, lifandi
Þessi lokaritgerð virðist engan endir ætla að taka og ég einfaldlega nenni þessu ekki lengur. Best að skrifa bara einhverja helvítis vitleysu og ljúka þessu af, verst að ég þarf svo að svara fyrir vitleysuna sem ég skrifa þann 26 janúar. Dem it sko. Það bíður svo ein önnur skýrsla eftir mér um leið og ég klára þessa ( á reyndar að vera byrjuð ) en hún er vonandi ekki lengi gerð enda heimildavinna eingöngu.
Aiuto!!!
sunnudagur, janúar 07, 2007
Áfram Framsókn
Mig langaði bara til að lýsa aðdáun minni á umhverfisráðherra vorum henni Jónínu Bjartmarz. Hún er að standa sig alveg einstaklega vel sem umhverfisráðherra. Að utanskildnu því að hún er með 30 ára gamalt kennarapróf úr einhverjum skóla sem er ekki til lengur og 3 ára lögfræðinám úr HÍ þá virðist hún vera alveg einstaklega vel til þess fallin að meta umhverfisáhrif af hinum og þessum framkvæmdum. Hún sýndi það og sannaði núna á dögunum með því að fella úr gildi umhverfismat sem aðilar eins og skipulagsstofnun og landvernd t.d voru búnir að vinna fagmannlega að og gefa álit sitt á. Kjella bar því við að hún hefði safnað að sér miklu magni upplýsinga og gengið sjálf um svæðið. Já þá hlýtur þetta að standast hjá henni. Nú ætla ég ekki að tjá mig um þetta umhverfismat því ég hef ekki lesið það en það er gaman af því að sjá hvað Framsóknarmenn vinna alltaf faglega að sínum málum, með öðrum orðum, taka sínar eigin sjálfstæðu pólitísku ákvarðanir í stað þess að láta fagfólk vinna sína vinnu. Húrra fyrir umhverfisráðherra.
föstudagur, janúar 05, 2007
Alcan eru snillingar
Já það var við því að búast að Alcan myndi spila út EF ÞAÐ VERÐUR EKKI STÆKKAÐ ÞÁ LOKUM VIÐ spilinu!!Jú jú auðvitað. Þetta er þekkt hreðjatak sem svona stórfyrirtæki geta beitt í kapítalismastefnum sínum. Þetta er svo sorgleg yfirlýsing hjá honum þarna Hrannari upplýsingafulltrúa Alcan að í staðinn fyrir að vera sorgleg þá er hún eiginlega bara hlægileg. Nú er heilaþvotturinn hjá peningajöfrunum aldeilis að virka og nú keppast stjórnmálamenn landsins um að sannfæra fólkið í landinu að Alcan séu enn mikilvægari en áður og ef ekki verði gert eins og þeir vilja þá verðum við illa sett. Fólk mun tapa vinnu og þessi einsleiti atvinnumarkaður sem er verið að skapa á landinu mun koma efnahagskerfinu í bobba. Við munum þurfa að skera niður hin ýmsu þægindi því nú muni leiðin aðeins liggja niður á við. Ef Hafnfirðingar kjósa yfir sig stækkun á álverinu í Straumsvík þá er gatan greið fyrir álversjöfrana. Sama sagan á eftir að endurtaka sig á Reyðarfirði og svo koll af kolli þar til að álverin verða orðin svo stór að þau munu ná landsendanna á milli. Það besta við þetta allt saman er samt að stækkunin í Straumsvík var lögð í hendur kjósenda. Það verður mjög athyglisvert að sjá hvort að auglýsingapeningaútlát Alcan og heilaþvottur muni hafa áhrif á Hafnarfjarðarbrandarana. Ef svo er þá er okkur virkilega ekki viðbjargandi.
sunnudagur, desember 31, 2006
og þeir hengdu Saddam..
ekki það að ég sakni hans mikið enda ekki mikið gull af manni. En fyrr má nú vera villta vestrið made in Hollwood í kringum þetta allt saman. Hér voru beinar útsendingar á BBC alla nóttina og ég fylgdist svolítið með því þar sem að ég er gjörsamlega búin að snúa sólarhringnum við þessa dagana. Júbb Saddam var náttúrlega glæpamaður og búinn að taka margan manninn sjálfur af lífi í gegnum valdatíð sína en persónulega þá trúi ég ekki að glæpur komi í stað fyrir glæp, líf fyrir annað líf, auga fyrir auga tönn fyrir tönn og allt það. Kallinn hefði náttúrlega átt að dúsa í fangelsi til dauðadags.
Það sem er gremjulegt við þetta allt saman er náttúrlega þessi vanalega framkoma Bandaríkjamanna sem maður er löngu búinn að fá nóg af. Þeir voru ekki svona súrir út í Saddam þegar hann réðst inn í Íran og notaði efnavopn í ríkum mæli til að drita niður Kúrdana. Nei þá studdu þeir Saddam. Svo þegar að hlutirnir fóru að breytast í kringum olíulindirnar þá allt í einu þurfti að fara að bjarga írösku þjóðinni frá einræðisherranum. Þá var Saddam skyndilega orðinn glæpamaður.
Það eru margir fleiri glæpamenn við völd í heiminum. En það er öllum alveg sama um það. Sérstaklega Bush. Ekki skiptir hann sér af borgarastyrjöldum í Afríku þar sem að fólk er drepið í hundruðatali á hverjum degi. Ég gekk framhjá skilti á Strikinu um daginn þar sem á stóð, Bush is not an American, Bush is an idiot. Jú ég get verið sammála því svo sem, mín vegna þá hefði hann mátt dingla með Saddam fyrst að þetta dingl er skilgreint sem réttlæti af Bandaríkjamönnum sjálfum, enda er hann ekki minni glæpamaður. Bara aðeins fínni á því.
2006 er að renna út hægt og hægt og við erum öll að verða árinu eldri. Ég segi bara gleðilegt nýtt ár úr 18 fm höllinni minni hérna á Öresundskolleginu. Ritgerðin sniglast áfram en ég þarf helst að vera búin með sem mest fyrir 2 jan því þá vil ég gjarnan að Pillan lesi yfir hana. Svo er vörnin núna einhver tímann í lok janúar. Ef þð vitið um einhvern sem langar að leigja íbúðina mína í nokkra mánuði, látiði mig endilega vita.
Happy new year, Felice anno nuovo, Feliz novidad, Godt nytar, Gleðilegt nýtt ár :) og greyin mín fariði varlega með sprengjurnar...
Það sem er gremjulegt við þetta allt saman er náttúrlega þessi vanalega framkoma Bandaríkjamanna sem maður er löngu búinn að fá nóg af. Þeir voru ekki svona súrir út í Saddam þegar hann réðst inn í Íran og notaði efnavopn í ríkum mæli til að drita niður Kúrdana. Nei þá studdu þeir Saddam. Svo þegar að hlutirnir fóru að breytast í kringum olíulindirnar þá allt í einu þurfti að fara að bjarga írösku þjóðinni frá einræðisherranum. Þá var Saddam skyndilega orðinn glæpamaður.
Það eru margir fleiri glæpamenn við völd í heiminum. En það er öllum alveg sama um það. Sérstaklega Bush. Ekki skiptir hann sér af borgarastyrjöldum í Afríku þar sem að fólk er drepið í hundruðatali á hverjum degi. Ég gekk framhjá skilti á Strikinu um daginn þar sem á stóð, Bush is not an American, Bush is an idiot. Jú ég get verið sammála því svo sem, mín vegna þá hefði hann mátt dingla með Saddam fyrst að þetta dingl er skilgreint sem réttlæti af Bandaríkjamönnum sjálfum, enda er hann ekki minni glæpamaður. Bara aðeins fínni á því.
2006 er að renna út hægt og hægt og við erum öll að verða árinu eldri. Ég segi bara gleðilegt nýtt ár úr 18 fm höllinni minni hérna á Öresundskolleginu. Ritgerðin sniglast áfram en ég þarf helst að vera búin með sem mest fyrir 2 jan því þá vil ég gjarnan að Pillan lesi yfir hana. Svo er vörnin núna einhver tímann í lok janúar. Ef þð vitið um einhvern sem langar að leigja íbúðina mína í nokkra mánuði, látiði mig endilega vita.
Happy new year, Felice anno nuovo, Feliz novidad, Godt nytar, Gleðilegt nýtt ár :) og greyin mín fariði varlega með sprengjurnar...
föstudagur, desember 29, 2006
Hef ekkert að segja
þannig að þessar fallegu myndir verða bara að skemmta ykkur seinustu dagana á árinu. Jejejsunnudagur, desember 24, 2006
Buon Natale, Gleðileg Jól, God Jul, Merry Christmas
Voglio mandare i miei miglior auguri di un sereno natale a tutti i miei amici e conoscenti con la speranza che passerete un scintillante anno nuovo. Grazie per tutti i bei momenti passati insieme nei anni precedenti.
Tantissimi baci ed abbracci, da Birna Natalizia in Danimarka!!
Vil óska öllum Gleðilegra Jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir að nenna að lesa bullið í manni hérna á þessari síðu. Eins nota ég tækifærið til að þakka fyrir óvænta pakka, jólakort, jólakveðjur og jólakökur sem bárust núna fyrir jólin. Það verður ekki fyrr en maður flytur heim aftur og hættur að vera í skóla að maður nennir að fara að skrifa jólakort og á efni á því að kaupa pakka, þannig að það verður enn bið í það!
Jólakveðjur frá Birnu og Tinnu á Öresunds ghettóinu sem komust lifandi af úr kynþáttafordómaárekstursleigubílaferðinni... Já við lentum í árekstri með einhverjum araba sem kallaði okkur kynþáttahatara og ákvað svo að keyra bara á næsta bíl á hringtorginu á Kastrip!! Gaman af því sko!
Merry christmas everyone..