eXTReMe Tracker
Birna Picciridda

föstudagur, apríl 08, 2005

whoooa whoaaaa þið eigið ekki eftir að trúa þessu en ég er komin með plaggið frá háskólanum í hendur og já ég er ekki að djóka en þeir náðu að klúðra því líka whoooaa whuuuaaaa whoaaaaa já ég get ekki annað en hlegið. Núna er komið inn á ferilinn minn að ég hafi tekið einhvern áfanga á Rannsóknarstofu í Umhverfiseðlisfræði og hafi fengið 20 af 30 mögulegum þegar ég hef hins vegar aldrei tekið próf í þeim áfanga... hins vegar vantar inn á ferilinn próf sem ég tók í umhverfislífeðlisfræði, þannig að eina kellingin með viti hefur greinilega lesið eitthvað vitlaust... arrghh ég nenni sko ekki að fara þarna niðureftir aftur!! Það mætti halda að það væru þau sem væru í landi þar sem er talað annað tungumál en þeirra eigin, ekki ég!!! Þau hefðu átt að leyfa mér bara að sjá um þetta eins og ég sagði einu sinni við einhvern starfsmanninn þarna niðurfrá í bræðiskasti fyrir um ári síðan þegar þolinmæðin var virkilega á þrotum. Bla bla bla sjáum til, kannski slepp ég bara við að taka einhvern eðlisfræðiáfanga í framtíðinni, kannski voru þeir bara að gera mér greiða? Hmmmm

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home