ÞETTA ERU NÁTTÚRLEGA BARA SNILLINGAR
Hótel á Sikiley býður pörum ókeypis helgardvöl ef barn kemur undirHótelkeðja á Sikiley býður pörum ókeypis helgardvöl ef barn kemur undir þegar þau dvelja á hótelinu. ?Látið ástina blómstra undir sólinni á Sikiley. Komið og getið barn í landi ástarinnar. Eftir fæðinguna bjóðum við ykkur fría helgardvöl á hóteli okkar.? Þannig hljómar auglýsing Hotels del Sole-keðjunnar en henni tilheyra 22 hótel á Sikiley.
Framkvæmdastjóri keðjunnar Armando LaMattina, segist vilja kynna Sikiley sem land ástarinnar og komast frá þeirri neikvæðu ímynd sem hafi loðað við landið. Pör geta dvalið á hvaða hóteli sem er af þeim 22 sem keðjan býður upp á ef barn hefur komið undir á hótelinu.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home