eXTReMe Tracker
Birna Picciridda

fimmtudagur, september 16, 2004

Jæja það lekur aldeilis fínt hraunið úr Etnu þessa dagana og ég hef fínt útsýni af svölunum hjá mér, sést rosalega vel, og mamma og pabbi á leiðinni til mín.....

Annars átti ég að fara til lögfræðingsins í dag. Hann hringdi í gær og vildi segja mér hvernig þetta hefði farið í gær. Nú hringdi hann aftur í morgun og sagði að hann þyrfti að tala betur við manninn í háskólanum því að það væri eitthað vesen, ég hef einmitt ekki góða tilfinningu um þetta allt saman og finnst einhvern veginn eins og ég sé á leiðinni héðan burt... æi maður bara finnur það á sér.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home