eXTReMe Tracker
Birna Picciridda: Wassup

fimmtudagur, maí 04, 2006

Wassup

Jæja, ekki alveg öllum var sama um öndina en flestum þó. Heimur versnandi fer!! Þeir sem þekkja mig vita að ég er veik fyrir öllu fiðurfé og því þarf ekki að örvænta um afdrif andarinnar ... Auðvitað skaut ég hana ekki! Og Nína Björg Sæmundsdóttir, ég held að ég verði bara að koma þarna ut til þín og stela þér eitthvað aðeins meira norður á bóginn, sýnist að uppeldi foreldra þinna sé alveg að fara út um þúfur þarna í útlandinu, ef miða má við orðbragðið á þér seinustu daga. Kannt meira að segja orðið að ríma með ljótum orðum. Þar hefurðu það væna mín. Annars er það einmitt orðið opinbert að ég og Nína munum hefja sambúð í kjallaranum heima hjá mömmu og pabba núna í sumar því að hún er sko búin að fá nóg af vinnu í sveitinni hjá mér. Þess má því vænta að ég muni hafa nógan tíma til uppeldis svona á milli vakta á verkfræðistofunni og á spítalanum þar sem að hún móðir mín er búin að troða okkur báðum á allskonar hugsanlegar vaktir að mér heyrist aðallega í sjalfboðavinnu. Þess á milli ætlum við stöllur svo að vera duglegar að stunda sveitaböllin með hinum 16 ára unglingunum og fara í fjallgöngur um hálendi Íslands. Þvílíkt masterplan.

En hei, ég fór alltof seint að sofa í gærkvöldi en get huggað mig við það að ég er officially með hærri greindarvísitölu en meðalmaðurinn!! Já mér leist nú ekkert á þetta próf í fyrstu en svo hef ég greinilega massað það svona líka því að í niðurstöðunum var mér tilkynnt að ég væri með 120 í Iq á meðan meðaltalið er ekki nema 100. Já sko mína, bara að það eigi eftir að koma að góðum notum í stærðfræðiprofinu, finnst það ólíklegt þó :(

Þið getið kíkt á www.persona.is og tékkað á þessu testi.

Over and out

5 Comments:

At 4. maí 2006 kl. 22:33, Blogger Ragnhildur said...

Sumarplanið hljómar mjög vel! Ég myndi vilja fara í nokkrar fjallgöngur en það verður víst ekki mikið um svoleiðis þegar maður á að sitja innilokaður yfir tölvunni allt sumarið :S

 
At 5. maí 2006 kl. 08:45, Blogger Picciotta said...

Ja thad hefdi sko verid gaman ad hafa thig med gattina infrasciamata :)

 
At 5. maí 2006 kl. 16:51, Anonymous Nafnlaus said...

nehehehe eg er med 134 hehehe

 
At 5. maí 2006 kl. 20:41, Blogger Picciotta said...

ok nína það þýðir að þú ert alveg að nálgast það að vera eins og rainman eða einhverjir álíka gaurar!!!!

 
At 8. maí 2006 kl. 23:13, Anonymous Nafnlaus said...

Þú þarft held ég ek að hafa áhyggjur að stunda mikið af böllum hérna sennilega næstu 5 árin...

 

Skrifa ummæli

<< Home