eXTReMe Tracker
Birna Picciridda: Enn og einu sinni fallast manni hendur!! Hvað er málið??

fimmtudagur, maí 25, 2006

Enn og einu sinni fallast manni hendur!! Hvað er málið??

Karlmaður var í gær dæmdur fyrir Hæstarétti í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás á fyrrverandi sambýliskonu sinni. Maðurinn sló konuna margsinnis í höfuðið með felgulykli en dómnum þótti ekki sannað að maðurinn hefði ætlað að bana konunni.
Árásin átti sér stað á heimili konunnar að morgni 28. ágúst síðastliðinn. Konan minnist þess að hafa fengið þungt högg á höfuðið án þess að hafa orðið vör við mannaferðir á heimili sínu árla morguns þennan dag. Þegar hún sneri sér við sá hún fyrrverandi sambýlismann sinn sem hélt á felgulykli sem hann barði hana margsinnis með í höfðuðið.

Maðurinn ber við minnisleysi varðandi atburðarásina en neitar ekki að hafa beitt konuna ofbeldi. Maðurinn neitar þó að hafa ætlað að verða konunni að bana eða gert tilraun til þess, líkt og honum var gefið að sök. Um ástæður árásarinnar er fátt vitað annað en maðurinn hafði séð til fyrrverandi konu sinnar á gangi með öðrum manni að loknum dansleik um nóttina, að hans sögn. Af geðrannsókn, sem gerð var á ákærða, og öðrum gögnum málsins þykir ljóst að hann hafði alið með sér sjúklega afbrýðissemi. Héraðsdómur Vesturlands hafði áður dæmt manninn í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hæstiréttur mildaði dóminn eins og áður segir í tveggja og hálfs árs fangelsi þar sem ekki þótti sannað að maðurinn hafi ætlað að bana konunni.
Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan 31. ágúst síðastliðinn og kemur sá tími til frádráttar við refsinguna. Maður var auk þess dæmdur til að greiða fyrrum sambýliskonu sinni 700.000 krónur í miskabætur, og um eina milljón króna í málskostnað.

JAHERNA HER!!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home