The driver and the slutty secretary!
Það eru tveir búnir að bjóða sig fram í nýja XX-flokkinn minn. Það þýðir að ég er komin með bílstjóra á vetnisbílinn sem verður bleikur að lit ( uppáhaldslitur bílstjórans ) með loðnu stýri svo honum verði ekki kalt á puttunum og útbúinn með sérstökum minibar aftur í fyrir mig og flokksfélaga mína, ekkert slor þar á ferðinni. Þar að auki er búið að skipa í ritarastöðuna og er þar gríðarlega efnilegur flokksfélagi á ferð þó ekki sé annað sagt, með sérstaka gráðu í kokteilablöndun og með mikla reynslu af dáleiðslu, sem mun án efa koma sér mjög vel í komandi kosningabaráttu. Nú vantar bara fólk í auglysingagerð og matargerð því ekki getum við verið óauglýst og svöng í baráttunni. Þar fyrir utan vantar helstu stefnumál en vitað er að flokkurinn mun helst einbeita sér að því að vera á móti öllum hinum gömlu og úreltu flokkunum. Verður því að unnið að því á næstu misserum að finna góðar úrbætur á öllu því sem við munum mótmæla og betur má fara á litla Íslandi. Stefnumálin munu ekki vera mörg, en markviss.Seinasta prófið er svo á fimmtudaginn. Ef að allt gengur að óskum þá mun það vera seinasta prófvígið í Bachelorbaráttunni, 7-9-13 því að ég nenni alveg ómögulega að læra.
14 Comments:
Þetta verður svalasta framboð ever sko!!
Ég er nokkuð viss um það!! Átt þú annars ekki að vera að vinna hvernig er það?
Jú, ég er bara svo fjölhæfur eins og þú veist náttulega:)
En hvað með námskonuna, á hún ekki að vera að læra?
Æiii farðírassgat!! :) :)
HIHI sjelling...
mig lagnar að vera með ef ég má bara sitja við minibarinn og "passa" hann;) líst helvíti vel á þennan bíl, má ég þá vera aðstoðarbílsstjóri því að ég kann ek að elda né auglýsa:)
Þú mátt vera lífvörðurinn minn!! Hvernig lýst þér á það? Í því felst að dandalast með mér á milli funda í fína bílnum, passa mini barinn á meðan ég er bissí að stjórnmálast og jú vera aðstoðardriver þegar aðaldriverinn er vant viðlátinn... Þú verður með stór sólgleraugu og svona spy-leiðslu í eyranu!! Ha?
ritarinn er ekki sáttur við að vera kallaður sjelling takk fyrir!!
Eru ritarar ekki sjellingar?!? Nei segi svona... verð sennilega að fara að verða góð við ritarann svo hann fari ekki að mynda uppþot í flokknum!! Ég skal búa til la parmigiana handa þér við tækifæri.. okei? Sáttur... sjelling?
Já það líst mér betur á, var farinn að íhuga klofningsframboð það hefði getað verið XY:) Þannig að já ég er sáttur... sjelling:)
Er ég í þessum flokki?
ef svo er hvaða hlutferki gegi ég?
ef ekki þá máttu bara eiga þig!
Heyrðu vantar svona flokk ekki pínu tölvunörd...miimiii
ójá... lífvörður.. það gerist sko ekki betra.. :D ánægð með þetta starf!! sérstaklega spy-snúruna maður minn..=)
Helgi!! Já auðvitað ertu með. Hvernig líst þér á Public relation stöðu? Maðurinn með samböndin?
Bibba tölvunörd, ójú það er heldur betur þörf á (tölvu) nördum í okkar raðir... you are so in :)
Skrifa ummæli
<< Home