eXTReMe Tracker
Birna Picciridda: Ótrúlegt

miðvikudagur, mars 15, 2006

Ótrúlegt

Hefði getað drepið fyrir hálfan líter af diet kók áðan. Var búin að vera að hugsa um kókflöskuna frá í morgun einhverntímann en búin að halda aftur af mér. Því verr og miður þá var dagurinn í dag frekar erfiður og fer ekki batnandi. Var á rannsóknarstofunni í morgun að gera tilraun og stelpuskrípið sem er með mér í hóp var alveg að fara með mig. Nenni ekki að fara út í smáatriði en klikkað fólk með háværa ískur rödd á dönsku er ekki það besta sem maður getur fengið í morgunmat þegar maður er þreyttur og stressaður fyrir. Þannig að ég fór fyrr heim úr skólanum til að geta farið og klárað skyrslu sem ég þarf að skila á morgun og er ekki komin of langt á leið með ( já læra fram á nótt er framundan ). Eftir klukkutíma ferðalag aftur til borgarinnar þá var kókþörfin orðin virkilega slæm og ég bara með 8 krónur í vasanum. Labba inn í Fakta búðina og beint í kók kælirinn DOOOOOHHHH hálfur líter af kók kostar 9.50 kronur. Andskotinn og ég sem er að bíða eftir að það komi nýtt VISA tímabil spara spara þangað til. Hvað getur maður keypt sér að drekka fyrir 8 krónur í Danmörku? Eftir nákvæma skönnun á öllum drykkjavörum í Fakta búðinni þá er það eina sem ég get keypt mér... BJOR ... og meira að segja 4 stk. Já 4 bjóra í staðinn fyrir ekki einu sinni eina kók. Arrgh, þarf að læra fram á nótt, þá er bjórdrykkja ekki góð. Hugsa með mér að ég fari og taki út 100 kr af VISA hlýt nú að redda því. Labba í hraðbankann og sting Nordea kortinu mínu inn. Þar er hægt að taka út 100 krónur en ég var búin að gleyma ( eða ekki ) að það var enginn peningur eftir þar inni. Þá er það bara íslenska VISAð... " vinsamlegast ytid á 300 500 og svofrv....!!!!! What??? Afhverju get ég ekki tekið út 100 krónur ef ég er útlendingur. Helvítis kynþáttahatarar. Nú er ég pirruð. Farin að læra og að vera pirruð í friði yfir lífmælingaskyrslunni sem ég er að gera ein með sjálfri mér... hnussss

1 Comments:

At 15. mars 2006 kl. 20:15, Blogger B said...

Úff myndi maður ekki brjálast að geta ekki keypt sér kók eða e-ð álíka, should be one of the little and simple things of life....en greinilega ekki!

Gangi þér vel í öllu þessu stressi:/, þú harkar þetta af þér eins og allt annað sæta:)

 

Skrifa ummæli

<< Home