eXTReMe Tracker
Birna Picciridda: OHHH

miðvikudagur, október 19, 2005

OHHH

ég var eitthvað að tuða um það um daginn að ég vildi fá kuldabola sem fyrst bla bla bla og mér varð af ósk minni, það er orðið verulega kalt bara seinnipartinn og á morgnana þó svo að sólin sé ekkert hætt að skína... en ég barasta gleymdi því að kulda fylgir ævinlega kvef og leiðindi og nú er ég orðin alveg stoppkvefuð og gat ekki mikið sofið í nótt sem varð til þess að ég komst ekki snemma úr rúminu í morgun þó það hafi nú svosem ekki verið neitt sérstaklega planað. Fínt að byrja að læra bara upp úr hádegi! Rölti út í seven eleven búðina til að kaupa mér cappuccino og cornetto þar sem að öll kafihús sem vert er að fara á opna ekki fyrr en ellefu hér í nágrenninu. Kaffið í seven eleven er svosem ekki til að hrópa húrra fyrir það er svo brennandi heitt að það passar fyrir mig að rölta með það heim og drekka það þar þegar ég er búin að kveikja á tölvunni og renna í gegnum bloggsíður landans, mbl.is og kíkja á bankareikninginn minn til að athuga hvort að það gæti skeð að þar hafi átt sér eitthvert kraftaverk yfir nóttina... það gerist yfirleitt ekki, svona ykkur að segja...

Annars er það helst í fréttum að ég er búin að selja sál mína og líkama til vísindanna fyrir 3000 danskar krónur og er fyrsta tilraunastarfsemin á morgun, það verður athyglisvert!!! Verst að ég þarf að vakna snemma...

2 Comments:

At 19. október 2005 kl. 21:39, Blogger Ragnhildur said...

Búhúúúú!! Það var ekki haft samband frá tilraunastofunni svo ég mun ekki taka þátt að þessu sinni, búhúúúú! Kannski ég geti komið þarna á morgun alveg tárvot og beðið um að fá að vera með, "ég þarf engan pening, plíííís, leyfið mér að vera með!!" og svo fer ég að há-hágráta! Heldurðu að það virki? hmmm, spurning hvort þetta sé svo spennandi að það sé þess virði að leggja þetta leikrit á sig?

 
At 19. október 2005 kl. 21:54, Blogger Picciotta said...

hmmm alveg spurning, hægt að kaupa fullt af skemmtilegu doti fyrir 3000dsk, en hei eg fer i fyrramalid og svo læt eg þig vita hversu spennandi thetta er og ef þetta er alveg hryllilega gaman og gott að borða og drekka (maður fær sko mat )þá ferðu á föstudaginn og grenjar og lætur öllum illum látum :)

 

Skrifa ummæli

<< Home