eXTReMe Tracker
Birna Picciridda: 'Eg

fimmtudagur, október 06, 2005

'Eg

er að hugsa um að hætta að segjast vera íslendingur. Ef maður segist vera íslendingur þá byrja danirnir já já þið lærið nú dönsku í skólunum á Íslandi þannig að þú hlýtur að tala fína dönsku!! Og ég alltaf bara já svona smá ehemm og flýti mér í burtu áður en að samræðurnar taka á sig eitthvað mikið flóknari mynd. Ég verð nu bara að segja eins og er að skóladanskan mín er núekkert alltof mikið að hjálpa mér hérna og svo fyrir utan þá staðreynd að það eru náttúrlega einhver 10 ár eða svo sem ég hef hvorki heyrt né reynt að tala dönsku þannig að ég er bara frekar stirð. Spurning samt um það hvort maður eigi nokkuð eftir að blekkja nokkurn því að í dag þá fór ég á skrifstofuna í skólanum og talaði þar við dreng nokkurn á ensku þar sem ég gat ekki sagt það sem ég ætlaði á dönsku, og hann já þú þarft bara að framvísa skírteini um það að þú sért íslensk og þá er þetta í góðu lagi ( til að fá lengri prófatíma vegna þess að maður er útlendingur ) ogég bara fyrirgefðu en hvernig veistu að ég er frá Íslandi, og hann bara brosti og svarar, jah það heyrist nú bara á því hvernig þú talar enskuna !!!!! Ekki svalt, og mer sem hefur alltaf fundist svo fyndið að geragrín af ítölum og frökkum þegar þeir tala ensku....ég ætla bara að þegja í nánustu framtíð

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home