eXTReMe Tracker
Birna Picciridda: JÆJA NYTT OG BETRA BLOGG

þriðjudagur, september 13, 2005

JÆJA NYTT OG BETRA BLOGG

Mér sýnist danirnir alveg vera að missa sig í hinni ýmsu hópavinnu. Alls staðar sem ég fer þá er verið að tala og vinna saman í hópum sem kemur sér ekkert sérstaklega vel fyrir mig þar sem að ég er enn að vinna í því að tala eins og ég sé með margfrægu kartöfluna í munninum. Tók samt eftir því í gær þegar ég brá mér í bæinn eftir skóla að ef ég þruma bara ordunum nógu hratt út úr mér með svona kartöfluhreim þá virðist fólk frekar skilja mig en þegar ég reyni að tala hægt og skyrt þannig að það er greinilega á réttri leid, fyrir utan HEJDO-ið sem ég fæ alltaf í endann... skyldi ég hljóma eins og svíi??

En allavegana í sambandi við þennan skóla þá er ég alveg bit á hversu fljótir þeir eru að búa til hópa. Ég hefði sennilega átt að vera miklu fyrr á ferðinni því að það er búið að taka smá tíma að finna fólkið sem ég átti að tala við vegna skólaferilsins, þeir búnir að taka náttúrlega tíma í að vinna úr honum, ég er búin að eyða nokkrum dögum í að velja mér fög og reyna að láta þau passa saman og núna eru náttúrlega búnar 2 vikur í skólanum og danirnir strax byrjaðir að skila inn verkefnum... alveg creizy!! Ég skilaði nú ekki inn einu verkefni einu sinni öll árin sem ég var á Ítalíu en það er kannski önnur saga...

En hvernig finnst ykkur nýja bloggið mitt? Eruði gjörsamlega ekki að fatta að það sé nýtt blogg eða hvað?? Engin comment eða ekki neitt pfffffffff

4 Comments:

At 13. september 2005 kl. 11:53, Blogger Picciotta said...

uuuu virkar þetta ekki örugglega...??? einn tveir þrír testing....

 
At 13. september 2005 kl. 11:56, Anonymous Nafnlaus said...

Humm, nýtt blogg já, betra...don't know yet, mér finnst hitt alltaf svo gott nema þetta er jú skýrara, gott fyrir svona sjónskerta eins og mig! En já, ég get allveg ýmindað mér að skólinn sé með alls kyns verkefnavinnu og fl. ég þarf að skila 30-40 hópverkefnum á önn hér og það er ekki auðvelt! Ég veit þú munt standa þig, u can do it!!! Baci bella!

 
At 13. september 2005 kl. 12:03, Blogger B said...

Þetta er fínt hjá þér, en fannst þér þetta virkilega flottast af öllum þeim sem stóðu til boða í blog templates???? Bara spyr:D

Best að vera í djúpu lauginni strax, verður bráðum komin með ósýnilega kartöflu í hálsinn!

 
At 14. september 2005 kl. 12:00, Anonymous Nafnlaus said...

Vissi að þú færir að ná þessu fljótt þ.e. málinu. Þú verður orðin flott um jólin að tala. Talar ítölskuna með dönskum hreim hehe.

 

Skrifa ummæli

<< Home