eXTReMe Tracker
Birna Picciridda: Hmm

fimmtudagur, júlí 01, 2004

Hmm

Já það er greinilega öllum sem lesa þetta rugl mitt hér nokkuð sama um refi og minka ef marka má miklar undirtektir í belgnum seinustu daga, og verð ég nú að lýsa yfir vonbrigðum mínum með nýútskrifaða líffræðinga sem létu EKKI ljós sitt skína í þessum málum, iss piss.

Allavegana. Það er orðið afskaplega heitt, held að það hafi verið verstu mistök hjá mér að fara heim seinasta sumar, ég virðist hafa dottið úr allri hitaæfingu á því að dvelja í því veðrarassgati sem Skaftafell er, í allt fyrrasumar. Ég er allavegana mjög hæg í öllum hreyfingum upp á síðkastið og langar helst bara að sofa allan daginn og það gefur auga leið að námsárangurinn vill nú ekki vera upp á sitt besta við svoleiðis aðstæður, og enn eru þó mestu hitarnir ekki byrjaðir, enn hangir hitamælirinn nu bara i rétt rúmum 30gráðunum.

Er nú samt að spá í að skella mér bara í næstu 4 próf og reyna að taka mig á í stressinu, þetta fer bara eins og það fer, lufsast bara og sitjast niður fyrir framan þessa professora og bulla eitthvað í þeim þar til að þeir neyðast til að gefa þér einkunn....

EN heiiii, ég er að koma heim þann 31 júli og vil að fólk hafi ofan af fyrir mér með leik og söng og öðrum skemmtiatriðum eins og ég geri þegar þið hafið komið og munuð koma í heimsókn til mín jájájá ...... HVAÐ HEFUR ÞU Á BOÐSTÓLNUM FYRIR MIG????

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home