eXTReMe Tracker
Birna Picciridda: Heitt heitt

fimmtudagur, júlí 08, 2004

Heitt heitt

Já það er heitt þessa dagana, og kettinum Kisínó líður mjög illa, í hvert skipti sem ég opna ísskápinn þá treður hann sér inn í neðstu hilluna greyið.

Mér tókst loksins að taka próf í dag, það þykir nú afrek út af fyrir sig, fyrir utan það að ég fékk líka 30 af 30 mögulegum þannig að ég er nokkuð sátt...

Nú er bara að læra fyrir næsta próf sem á að vera á mánudaginn, sjáum til hvort ég á eftir að geta tekið það, því að svo er annað próf á þriðjudaginn, og enn annað á fimmtudaginn, og fyrir utan það þá er ég að fara að vinna í fyrramálið, í brúðkaup annað kvöld, og svo að vinna líka í næstu viku, þannig að það er nóg að gera fyrir utan það að vera að drepast úr hita..... já já

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home