eXTReMe Tracker
Birna Picciridda

föstudagur, september 10, 2004

Heimska blogg...maður skrifar og skrifar og það bara strokast allt út...eins gott að maður er gæddur mikilli þolinmæðigáfu....

Það er allt fullt af svona heimskum amerískum realtyshowum sem búið er að breyta yfir í ítalska veruleikaþætti í sjónavarpinu hérna. Alveg ótrúlegt helvíti maður. Þetta eru alveg merkilega heimskulegir þættir sem maður verður svo alveg ótrúlega húkked á. Það er líka alveg furðulega oft kveikt á sjónvarpinu hjá mér akkúrat þegar þessir þættir eru, skil nú ekkert í því. Eins og maður hafi ekkert annað að gera en að horfa á þessa þvælu? Málið er nefnilega að ég byrja að horfa á þetta til að geta hlegið og sett út á vitleysuna sem þessu liði dettur í hug að gera og segja....svo veit maður ekki fyrr en maður er kominn á kaf í ruglið. Þetta er að mínu viti grafalvarlegt mál. Hvað er að þessum dagskrárgerðarmönnum eiginlega? Svo er ekki eins og það sé bara einn eða tveir af þessum bölvuðu þáttum heldur er hver stöð með allavegana 2 svona brjálæðisrealitysjóv, martröð dauðans að kveikja á tellyinu....

Dæmi um einn svona þátt sem er sendur út tvisvar á dag. 4 ungmennum er troðið inn í eitthvað hús í Cinacittá þar sem þau búa saman. Hvert þeirra á að reyna að uppfylla eitthvað skilyrði, svona eins og áramótaheit eða eitthvað svoleiðis. Ein er að reyna að fá bílpróf og svo ætlar hun að reyna að gleyma fyrrverandi kærasta sínum sem bæ ðe vei hún náði í í öðrum svona veruleikaþætti sem er svona ítölsk útgáfa af bachelor þar sem hann valdi hana af þvi að hun var svo sæt og með stor brjost ( ekki ufficial en lesið á milli linanna ) enda voru þau ekki fyrr komin út úr sjónvarpsverinu að þau voru byrjuð að rífast. Með þessarri gellu er ein sem er að reyna að verða mjó, og hun er ekki einu sinni feit þannig að það ætti ekki að vera það mikið mál... Með þessum tveimur býr svo strákur sem er alltaf ber að ofan og vill reyna að opna bar og með þessum þremur býr sá fjórði sem reynir að láta þann þriðja mistakast að opna barinn og er lika alltaf ber að ofan til að vera í stíl við hinn..... doooooohhhhh

Allavegana, gellan er buin að gleyma kærastanum en enn er hun ekki komin með bilprofið eftir 2 manaða ökuæfingar á næstum hverjum degi þar sem að henni tekst aldrei að klara heilan bílatíma án þess að drepa á bílnum, jeduddamia.... í gær fór hun svo loksins í bílprófið en það gekk nu ekki betur en svo að hun féll og þátturinn í gær fór allur í grenj og aftur grenj þar sem áð heimurinn er óréttlátur og prófstjórinn hataði hana þvi að hun kann sko alveg að keyra...... þetta er alveg ótrúlega spennandi.... HVAÐ GERIST NÆST??????

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home