eXTReMe Tracker
Birna Picciridda

mánudagur, september 13, 2004

Ef ykkur finnst óþægilegt að lesa bloggið með myndina svona fyrir aftan þá er þjóðráð að sverta textann með músinni eins og Þóranna benti mér á, þannig er hægt að lesa skýrt og greinilega.

Annars er afskaplega leiðinlegt að bíða svona og gera ekki neitt. Vona að þessi maður fari að láta mig vita eitthvað. Ég er samt búin að fá hálfgert loforð um að grein sem ég skrifaði um þessar hrakfarir mínar verði birt í einu af mikilvægustu dagblöðunum hérna, þar sem að blaðamaður sem vinnur þar las hana og fannst hun brilliant skrifuð, já ekki nema maður hafi bara valið sér vitlaust fag frá byrjun..... hefði sennilega átt að fara í fjölmiðlafræðina .... hver veit? Allavegana veit ekki hvort að það borgi sig að fara að birta skammargrein um háskólann hér og meðlimi hans ef ég ætla mér svo að halda áfram að læra hérna, en ég vona að þetta komi allt saman í ljós sem FYRST!!

Og hvernig er það? Er enginn þarna úti sem les þetta orðið?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home