eXTReMe Tracker
Birna Picciridda: Uff

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Uff

eru þessir olympiuleikar ekkert ad verða búnir? Allar sjónvarpsrásir undirteknar og því ekkert til að horfa á og dreifa huganum eftir langa og stranga stærðfræðidaga í DTU. Þetta gengur ekki lengur. Það er orðið svo slæmt að í stað þess að sitjast aftur niður fyrir framan bækurnar á kvöldin þá er ég farin að horfa á heimsfréttirnar á BBC world og auglýsingar á MTV bara til að horfa á eitthvað. Úff.

Annars var ég að vafra á netinu og fann bloggsíðuna hjá Begge Grillo sem er þekktur ítalskur vinstrisinnaður uppfinninga og hugmyndasmiður. Alltaf gaman að hlusta og lesa eftir hann. Hann er einmitt með bloggsíðu og ég barasta vissi ekki að það væri hægt að kommenta svona mikið á einu bloggi en einn pósturinn hjá honum er með yfir 2000 komment. Engin tilviljun að sá póstur fjallaði um löggjöfina sem nýbúið er að setja í ítölsku atvinnulífi. Já 'Italia er sko going down... snuff snuff...

En ég er farin að sofa

2 Comments:

At 21. febrúar 2006 kl. 23:46, Anonymous Nafnlaus said...

Krullið er allavega búið thank god.....
Seljan

 
At 22. febrúar 2006 kl. 19:11, Anonymous Nafnlaus said...

ég er búin að missa af leiðarljósi í sko 2 vikur *tár* =/.. vonanadi fara þessar íþróttir að klárast:)

 

Skrifa ummæli

<< Home