eXTReMe Tracker
Birna Picciridda: HVERSU LENGI Á AÐ LEYFA USA AÐ KOMAST UPP MEÐ ÞESSA HELVITIS VITLEYSU?FER EKKI NOG AÐ VERÐA KOMIÐ AF ÞESSU RAUNVERALEIKAFIRRTA STÓRMENNSKUBRJÁLÆÐI??

laugardagur, október 01, 2005

HVERSU LENGI Á AÐ LEYFA USA AÐ KOMAST UPP MEÐ ÞESSA HELVITIS VITLEYSU?FER EKKI NOG AÐ VERÐA KOMIÐ AF ÞESSU RAUNVERALEIKAFIRRTA STÓRMENNSKUBRJÁLÆÐI??

Tíu óbreyttir borgarar létust þegar bandaríski herinn gerði stórsókn á bæinn Sadah við landamæri Sýrlands í morgun. Þyrlur gerðu árás úr lofti en að því loknu réðust 1.000 hermenn til inngöngu inn í hann. Að sögn bandaríska hersins var aðgerðin stórsókn hersins gegn liðsmönnum al-Qaeda. Þeir sem létust voru óbreyttir borgarar að flýja úr borginni í bílum sínum.

Á meðal hinna látnu eru þrjú börn.

Að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC, var farið í aðgerðirnar í kjölfar þess, að bandaríska hernum mistókst að koma í veg að sprengjur voru sprengdar í bænum Hilla í gær og í bænum Balad á fimmtudag. Tíu létust í Hilla en 95 í Balad. Uppreisnarmönnum úr röðum súnnímúslima er kennt um ódæðið.

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í Princeton háskóla í gær, að stjórnvöld gætu ekki kallað her sinn heim frá Írak. Ef það gerðist myndu ?villimannslegir morðingjar? taka við stjórn landsins, að hennar sögn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home