eXTReMe Tracker
Birna Picciridda

föstudagur, maí 07, 2004

Já ég hef fengið þó nokkrar fyrirspurnir um væntanlega göngu mína ítalska sjóherinn, held henni móður minni lítist ekkert á þessar sögusagnir sem henni hafa borist til eyrna ef litið er á ósköpin öll af sms-um sem hafa rignt yfir mig seinustu dagana varðandi þessa ákvörðun mína. Ég get þó róað hana og aðra sem ekki hafa getað sofið á nóttinni með því að ég mun fara mjög varlega í meðhöndlun allra vopna og geislavirkra efna, enda þarf maður að ganga í gegnum mjög erfið námsskeið aður en maður fær að leika sér með svoleiðis dót í ítalska hernum.

Vissuð þið að 1870 var Tórínó höfuðborg Ítalíu? Nei ég er nokkuð viss um að þið vissuð það ekki, IGNORANTI!!!

Vissuð þið að Ísbirnir eru ekki hvítir heldur svartir, það er bara sólin sem skín á þá sem lætur þá líta út fyrir að hvítir!!

Hafiði nokkurn tímann séð froskabörn, ef svo er hvernig eru þau á litinn? Ég hef sko séð þau og er að reyna að láta þau breytast í fullorðna froska.

Hélt David Beckham fram hjá Victoriu?

Ohmen vitiði ekki neitt???

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home